| Nýskráningar á Salastöð |
|
|
Til upplýsinga fyrir þá sem sækja um skráningu á Heilsugæsluna í Salahverfi Íbúar Linda-, Sala-, Kóra- og Vatnsendahverfa hafa forgang að skráningu á Heilsugæsluna í Salahverfi. Umsóknum íbúa í öðrum hverfum Kópavogs verður svarað skriflega. Frá því að skráningar hófust á Heilsugæsluna í Salahverfi í desember 2003, hafa nú í ágúst 2008 tæplega 11 þúsund einstaklingar skráð sig. Læknar stöðvarinnar eru nú 8 talsins í 7 stöðugildum. Starfsfólk Heilsugæslunnar í Salahverfi mun kappkosta að veita öllum skjólstæðingum sínum sömu góðu þjónustuna. Í því felst meðal annars viðleitni til að hafa biðtíma eftir viðtali hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi sem stystan. Ganga verður frá skriflegri skráningu á heilsugæslustöðinni. Vinsamlegast leitið til starfsfólks stöðvarinnar sé þörf á frekari upplýsingum um skráninguna. |

