| Breytingar á ung- og smábarnavernd frá 1. september 2009 |
|
|
|
Landlæknisembættið hefur ákveðið að taka upp breytt fyrirkomulag á skoðunum í ung- og smábarnavernd. Í stað skoðana við 3½ og 5 ára aldur verða þær gerðar við 2½ og 4 ára aldur barnsins. Sjá www.landlaeknir.is.Einnig verða tekin í notkun ný tæki til að meta þroska barna. Þau eru PEDS – Mat foreldra á þroska barna og BRIGANCE þroskaskimun. Heilsugæslan í Salahverfi vill verða við þessum tilmælum og þannig innleiða þessar nýju ungbarnaskoðanir og hvetja því foreldra til að kynna sér þær. Foreldrar/forráðamenn þurfa að panta tíma með góðum fyrirvara á sinni heilsugæslustöð fyrir þessar skoðanir en þær taka frá 40 og upp í 60 mínútur. · Börn sem eru 2½ til 3ja ára fara í 2½ árs skoðun hjá hjúkrunarfræðingi og lækni. § PEDS Mat foreldra á þroska barna og BRIGANCE þroskaskimun. (lögð fyrir barnið). · Börn sem eru 3ja til 5 ára og fóru síðast í 18 mánaðar skoðunn, fara í 4 ára skoðun hjá hjúkrunarfræðingi (og lækni ef þörf er á). § PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun (lögð fyrir barnið), sjónpróf . Á þessu aldursskeiði er barnið bólusett gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta, í einni sprautu. Ef foreldrar eru áhyggjufullir og vilja síður láta svo langan tíma líða milli skoðana, er auka viðtal hjá hjúkrunarfræðingi velkomið. · Börn sem hafa þegar farið í 3½ árs skoðun fara næst í skoðun til hjúkrunarfræðings u.þ.b. ári seinna (og læknis ef þörf er á). § PEDS Mat foreldra á þroska barna § Bólusetning. (barnaveiki, stífkrampi, kíghósti í einni sprautu)
|

