| Inflúensa H1N1/SVÍNAFLENSA |
|
|
|
EKKI ER HÆGT AÐ TAKA VIÐ FLEIRI BÓKUNUM FYRR EN Á NÝJU ÁRI. Í BYRJUN JANÚAR KEMUR Í LJÓS HVAÐA SKIPULAG VERÐUR Á BÓLUSETNINGUM ÞÁ OG BIÐJUM VIÐ YKKUR AÐ HAFA SAMBAND Í JANÚAR Í SÍMA 590-3900 EF ÞIÐ ÞURFIÐ BÓLUSETNINGU.
Bóluefni verður væntanlega næst dreift til heilsugæslustöðva 15. desember og síðan 6. janúar 2010. Auglýst verður þegar nær dregur hvenær tímapantanir hefjast að nýju. Starfsfólk heilsugæslustöðva bólusetur áfram með því bóluefni sem það hefur til umráða, á meðan það endist. Heilsugæslustöðvar annast endurbókanir tíma fyrir bólusetningu og veita upplýsingar. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag á hverri stöð eru á síðum stöðvanna. Upphaflega var gert ráð fyrir að alls 200.000 skammtar bóluefnis bærust til landsins til áramóta en nú eru horfur á að skammtarnir verði um 170.000. Ástæður tafa við afhendingu bóluefnis eru minni framleiðslugeta framleiðandans en áætlað var, vandamál sem tengjast innpökkun bóluefnis og fleira. Vandinn snertir alla sem bíða eftir bóluefninu, ekki aðeins Íslendinga. |

