|
Heilsuvernd eldri borgara |
|
Markmiðið með heilsuvernd eldri borgara er að viðhalda heilbrigði einstaklingsins og gera honum kleift að búa lengur á eigin heimili. Í viðtölum er m.a. veitt ráðgjöf og upplýsingar um þá þjónustu sem eldri borgurum stendur til boða, leitast er við að greina áhættuþætti varðandi heilsufar og veita ráðleggingar um fyrirbyggjandi aðgerðir. Einnig að vera tengiliður við heimilislækna, Miðstöð heimahjúkrunar, félagslega heimaþjónustu og aðra fagaðila og stofnanir. Með fjölgun eldri borgara í nánustu framtíð er enn mikilvægara að huga að fyrirbyggjandi aðgerðum til að viðhalda heilbrigði og ekki síst að meðhöndla sjúkdóma og hrörnun í tíma til að einstaklingurinn viðhaldi sem lengst líkamlegri, andlegri og félagslegri færni.
Heilsugæslan í Salahverfi sendir íbúum Linda-, Sala- Kóra- og Vatnsendahverfis sem eru 75 ára og eldri bréf og býður þeim viðtal. Þorgerður Einarsdóttir og Edda Ýr Þórsdóttir hjúkrunarfræðingar sinna heilsuvernd eldri borgara. Viðtalstími er á þriðjudögum eftir hádegi. Eftirlit meðal annars með: - Blóðþrýstingi
- Blóðsykri
- Hæð og þyngd
- Sjón og heyrn
- Andlegum, líkamlegum og félagslegum þáttum
- Ónæmisaðgerðum, svo sem lungnabólgu- og inflúensubólusetningu.
Aðstoð við að útvega: - Hjálpartækjabeiðni
- Heimahjúkrun
- Félagslega heimaþjónustu
- Heimsendan mat og fleira
Áhugaverðir tenglar:
|