Heilsugæslan Salahverfi - Salavegi 2 - 201 Kópavogi - Sími 590 3900

Heilsuefling kvenna E-mail

Markmið heilsuelfingar er að bæta heilsu kvenna á aldrinum 40 - 69 ára. Bætt heilsa leiðir til betri líðanar og á sama tíma er dregið úr vægi áhættuþátta ýmissa hættulegra sjúkdóma. Leitað er eftir einkennum um forstig ýmissa sjúkdóma sem mikilvægt er að greina snemma. 

Af hverju á að skoða heilsu kvenna sérstaklega? 
Það eru ýmsir sjúkdómar sem herja einungis á konur og gera venjulega fyrst vart við sig á aldrinum 40 – 69 ára t.d. sjúkdómar tengdir breytingarskeiði. Þá eru til sjúkdómar sem eru algengari hjá konum en körlum á þessu aldursskeiði, sjúkdómar á borð við beinþynningu og þvagleka. Einnig er birtingarmynd ýmissa sjúkdóma á annan veg hjá konum en körlum og ber þar helst að nefna hjarta- og æðasjúkdóma.

Af hverju er þetta okkur mikilvægt?
Góð heilsa er okkar dýrmætasta eign. Rannsóknir sýna að margir sjúkdómar geta verið vangreindir, auk þess er mikilvægt að greina ýmsa sjúkdóma á frumstigi. Skoðun sem þessi gæti bætt úr hvoru tveggja. Það er tiltölulega auðvelt að draga úr líkum á ýmsum sjúkdómum með því að stemmu stigu við helstu áhættuþáttum. Gott dæmi um slíka áhættuþætti eru háþrýstingur og ofþyngd.

Hvernig fer þetta fram?
Heilsuefling kvenna byggist á þremur stuttum heimsóknum á heilsugæslustöðina.

Fyrsta koma
Í fyrstu heimsókninni er heilsufarsaga þín tekin saman í stórum dráttum, blóðþrýstingurinn er mældur sem og hæð og þyngd. Ef þurfa þykir er einnig tekið hjartalínurit og öndunarpróf. Þér er afhentur spurningarlisti sem þú getur svarað í rólegheitum síðar. Mikilvægt er að þú gefir þér góðan tíma til að svara honum vandlega. Í spurningarlistanum er spurt um ýmsa áhættuþætti á borð við reykingar, hvort ættarsaga sé um ákveðna sjúkdóma, hvenær þú hafir síðast farið í krabbameinsskoðun o.s.frv. Þá er einnig spurt um mataræði, hreyfingu og svefn.

Önnur koma 
Í þessari heimsókn er tekið blóðsýni auk þess sem þú skilar inn útfylltum spurningalista í afgreiðsluna  í lokuðu umslagi, merktu „heilsuefling kvenna“.

Þriðja koma
Í þriðju heimsókninni fer læknir yfir niðurstöður skoðunar og rannsókna ásamt þeim upplýsingum sem komu fram í spurninglistanum. Mat verður lagt á áhættu þína á að því að fá ýmsa sjúkdóma. Þér verða gefnar ráðleggingar um hvernig megi draga úr áhættunni og hvað þú getur gert til að bæta heilsuna og forðast alvarleg veikindi. Ef þörf er á frekari rannsóknum færð þú upplýsingar um áframhaldandi greiningu og læknismeðferð. 


Niðurstöður heilsueflingarinnar verða í samráði við þig sendar til heimilislæknis þíns en allar frekari rannsóknir og/eða eftirlit verða gerðar  í samráði við hann sé talin þörf á því.
Þá gefst þátttakendum kostur á að hitta næringarfræðing til að yfirfara mataræði og fá einstaklingsbundna leiðsögn íþróttafræðings varðandi hreyfingu.

Hvernig panta ég tíma?
Heilsugæslan Salahverfi er opin virka daga kl 8 – 18.
Hægt er að panta tíma í síma 590-3900.

Hvað kostar þetta?
Komugjöld, tvisvar sinnum 1.000 krónur.
Rannsóknargjald vegna blóðprufunnar sem er kr 1.400 krónur. 
Verði komurnar fleiri greiðist komugjald fyrir hverja þeirra 1.000 krónur.