Heilsugæslan Salahverfi - Salavegi 2 - 201 Kópavogi - Sími 590 3900

Um Heilsugæsluna Salahverfi E-mail

Starfssemi Heilsugæslunnar í Salahverfi hófst 20. janúar 2004. Rekstrarformið er á grundvelli útboðs og er nýtt hvað varðar heilsugæslustöðvar hér á landi. Meginmarkmið ráðuneytisins með útboði reksturs heilsugæslustöðvarinnar var að auka aðgengi, hagkvæmni og skilvirkni í heilsugæslunni. Einnig að tryggja samfellda, aðgengilega og heildræna þjónustu.

Einkahlutafélagið Salus rekur heilsugæslustöðina samkvæmt samningi milli félagsins og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins sem undirritaður var í maí 2003. Salus ehf., sem er í eigu læknanna Böðvars Arnars Sigurjónssonar og Hauks Valdimarssonar, átti hagstæðasta tilboð þeirra er buðu í reksturinn, bæði hvað varðaði mat á faglegum þáttum og verð.

Heilsugæslunni í Salahverfi er fyrst og fremst ætlað að leggja áherslu á kjarnaverkefni heilsugæslunnar í þjónustu sinni, þ.e. almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu, meðgönguvernd, ungbarnavernd og skólaheilsugæslu. Heimahjúkrun á þjónustu heilsugæslustöðvarinnar er þjónað miðlægt af Heilsugæslunni í Kópavogi.

Þjónustusvæði Heilsugæslunnar í Salahverfi nær til Linda-, Sala-, Kóra- og Vatnsendahverfa í Kópavogi. Auk ofangreinds þjónustusvæðis er einnig gert ráð fyrir að til stöðvarinnar geti leitað fólk úr öðrum hverfum Kópavogs svo og nágrannasveitarfélögum. Einnig fólk með lögheimili utan höfuðborgarsvæðisins en dvalarstað þar, svo sem námsmenn af landsbyggðinni. Skráðir skjólstæðingar Heilsugæslunnar í Salahverfi eru nú haustið 2008 tæplega 11 þúsund.

Markmið Heilsugæslunnar í Salahverfi er að veita skjólstæðingum sínum góða þjónustu. Góð heilsugæsla einkennist af góðu aðgengi og samfelldri þjónustu sem veitt er á viðeigandi hátt. Starfsfólk Heilsugæslunnar í Salahverfi leggur þess vegna mikla áherslu á gott aðgengi að þjónustunni, sem síðan mun leiða af sér hin meginatriði góðrar heilsugæslu, þ.e. möguleikum á samfelldri þjónustu veittri á viðeigandi hátt.

Okkar markmið, stefna og gildi.

  • Hlutverk
    Okkar hlutverk er að veita aðgengilega og samfellda heilbrigðisþjónustu með hag einstaklingsins og fjölskyldunnar í huga. Þjónustan grundvallast af sérþekkingu og byggir á þverfaglegu samstarfi. 
  • Ábyrgð
    Við berum faglega ábyrgð á störfum okkar og gerum okkur grein fyrir gildi þess og mikilvægi fyrir skjólstæðinga okkar. 
  • Traust
    Við gætum fyllstu virðingar og trúnaðar, gætum þagmælsku um þætti sem varða starfið og höfum í heiðri siðareglur við dagleg störf. 
  • Þekking / Fagmennska
    Við öflum okkur þekkingar, símenntunar/endurmenntunar og nýtum hana til að byggja upp starf okkar. Við vinnum saman til að ná betri árangri í starfi okkar. 
  • Virðing
    Við virðum og treystum hvert öðru, hlustum á aðra og virðum mismunandi viðhorf og skoðanir.