|
Nýir læknar komnir til starfa |
|
|
|
|
Rannveig Pálsdóttir heimilislæknir lét af störfum síðastliðið sumar. Í staðinn hafa verið ráðnir tveir læknar sem skipta á milli sín einni stöðu heimilislæknis. Þetta eru þau Íris Sveinsdóttir og Lýður Árnason. Þau eru bæði sérfræðingar í heimilislækningum og hafa orðið mikla reynslu í störfum, en þau hafa meðal annars starfað við heilsugæslu á Vestfjörðum um árabil. Þau skiptast á að starfa viku í senn og þjóna þá fyrst og fremst þeim hópi sem áður var skráður hjá Rannveigu. Þau Íris og Lýður eru boðin velkomin til starfa.
|