| Meðgönguvernd |
|
|
Meðgönguvernd er í höndum ljósmæðra og heilsugæslulækna. Samvinna er á milli þeirra og fæðingarlækna á Miðstöð mæðraverndar. Kvennasvið LSH sinnir barnshafandi konum í áhættumeðgöngu. Boðið er upp á ómskoðun og aðrar fósturannsóknir í samstarfi við Fósturgreiningardeild Kvennasviðs LSH. Sjá upplýsingar á vefsíðu Fósturgreiningardeildar LSH http://www.landspitali.is/ undir Kvennasvið, Fósturgreiningardeildar. Fæðingarfræðuslunámskeið eru í boði ásamt fræðslu um brjóstagjöf, fræðslu fyrir verðandi feður og fræðslu sjúkraþjálfara. Sjá nánar á heimasíðu Heilsugæslunnar http://www.heilsugaesla.is/ Á Miðstöð mæðraverndar, Þönglabakka 1 í Mjódd, er boðið upp á næringarráðgjöf og stuðning til reykleysis. Tímabókanir eru í síma 585 1400. Einnig er veitt ráðgjöf í síma 585 1400 alla virka daga frá kl. 08 - 16. Á heimasíðu miðstöðvarinnar http://www.heilsugaesla.is/ undir Mæðravernd er að finna fræðsluefni fyrir verðandi foreldra. Símaþjónusta Læknavaktarinnar er opin frá kl. 17 alla virka daga og allan sólarhringinn um helgar. Sími Læknavaktarinnar er 1770 og hjá Neyðarlínu er síminn 112 Yfirlit yfir venjubundna meðgönguvernd Í hverri skoðun ættir þú að fá tækifæri til umræðna og spurninga og fá upplýsingar og fræðsluefni sem við á hverju sinni. Að öllu jöfnu munt þú varðveita meðgönguskrá þína fram að fæðingu og ávallt hafa hana meðferðis í meðgönguverndina. Ljósmóðir eða læknir mun upplýsa þig um niðurstöður allra rannskókna sem gerðar eru. Auk almennra upplýsinga ætti þér að standa til boða fæðingarfræðslunámskeið og fræðsluefni sem byggir á bestu þekkingu á hverjum tíma.
Snemmspjall Snemmspjall er nýjung í meðgönguvernd og býðst öllum konum með jákvætt þungunarpróf að hafa samband við heilsugæsluna fyrir 12. viku meðgöngu. Verðandi mæður eru hvattar til að nýta sér þessa þjónustu sem fyrst á meðgöngu. Snemmspjall er tími hjá ljósmóður þar sem tækifæri gefst til að fræðast um meðgönguvernd og fá ráðleggingar varðandi mataræði, lifnaðarhætti, algenga meðgöngukvilla og ýmislegt fleira. |

