Meginmarkmið skólaheilsugæslu er að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu líkamlegu, andlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á hverju sinni.
Starfssvið skólahjúkrunarfræðings er yfirgripsmikið. Helstu störf eru reglubundnar skoðanir, bólusetningar, viðtöl, fræðsla og ráðgjöf af ýmsum toga, fyrirbyggjandi starf, heilsuefling og vinna við nemendavernd svo fátt eitt sé nefnt. Starfsfólk skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra og forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra er veita skólabarninu þjónustu.
Heilsugæslan Salahverfi hefur umsjón með skólaheilsugæslu í 5 skólum. Þeir eru:
- Lindaskóli með um 600 nemendur
Skólahjúkrunarfræðingar eru Þorgerður Einarsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir. Skólalæknir er Böðvar Örn Sigurjónsson.
- Salaskóli með rúmlega 650 nemendur
Skólahjúkrunarfræðingar eru Jónína Erlendsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir. Skólalæknir er Haukur Valdimarsson.
- Waldorfsskólinn Lækjarbotnum með 65 nemendur
Skólahjúkrunarfræðingar eru Fjóla Grímsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir.
- Vatnsendaskóli með rúmlega 420 nemendur
Skólahjúkrunarfræðingur er Edda Ýr Þórsdóttir. Skólalæknir er Friðný Jóhannesdóttir.
- Hörðuvallaskóli með rúmlega 530 nemendur
Skólahjúkrunarfræðingur Halla Hrund Hilmarsdóttir. Skólalæknir er Ragnar Logi Magnason.
|