Gjaldskrá fyrir sjúkratryggða
Velferðarráðuneytið hefur með "Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu", sem gekk í gildi 1. janúar 2012, ákveðið eftirfarandi greiðslur sjúkratryggðra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.
Sjúkratryggðir kunna að þurfa að greiða önnur gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu, t.d. þegar heilsugæslulæknar vísa þeim til sérfræðinga eða í sérstakar læknisfræðilegar rannsóknir. Þau gjöld koma fram í reglugerðinni.
Eftirtaldir greiða samkvæmt Aldraðir I: Aldraðir 67 - 69 ára sem hafa engan eða skertan lífeyri.
Eftirtaldir greiða samkvæmt Aldraðir II: Öryrkjar Aldraðir 70 ára og eldri. Aldraðir 67 - 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs. Aldraðir 60 - 69 ára sem njóta óskerts ellilífeyris. Þeir sem hafa verið atvinnulausir lengur en sex mánuði. Framvísa þarf vottorði frá Vinnumálastofnun. Einstaklingar 18-66 ára (og atvinnulausir skv. vottorði) sem hafa greitt 29.500 kr. á almanaksári eiga rétt á afsláttarskírteini, upphæðin er 23.600 kr. fyrir aldraða I, 7.400 kr. fyrir aldraða II og 8.900 kr. fyrir börn með sama fjölskyldunúmer. Nánari upplýsingar um afsláttarskírteini og gjöld þeirra sem eru með afsláttarskírteini eru í 14. og 15. grein reglugerðarinnar.
Komur
Koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00, almennt gjald kr. 1.000 aldraðir I kr. 800 aldraðir II kr. 500
Koma á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma, almennt gjald kr. 2.600 aldraðir I kr. 2.080 aldraðir II kr. 1.300
Undanþegin greiðslu komugjalda eru börn undir 18 ára aldri og börn með umönnunarkort. Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir sem koma vegna mæðra- og ungbarnaverndar og heilsugæslu í skólum.
Vitjanir
Vitjun læknis á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00, almennt gjald kr. 2.800 aldraðir I kr. 2.200 aldraðir II kr. 1.400
Vitjun læknis utan dagvinnutíma, almennt gjald kr. 3.800 aldraðir I kr. 3.200 aldraðir II kr. 1.850
Undanþegin greiðslu fyrir vitjanir eru börn undir 18 ára aldri og börn með umönnunarkort.
Rannsóknir og greiningar
Rannsókn með beiðni til rannsóknarstofu, almennt gjald kr. 1.800 aldraðir I kr. 1.300 aldraðir II kr. 660 börn yngri en 18 ára kr. 260 börn með umönnunarkort, kr. 0
Krabbameinsleit, almennt gjald kr. 3.700 börn yngri en 18 ára kr. 3.700 aldraðir I kr. 3.100 aldraðir II kr. 1.800
Bólusetningar (uppfært mánaðarlega)
Auk komugjalda skulu sjúkratryggðir greiða fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) sem hér segir:
- Blóðmauraheilabólga
- Fyrir börn, kr. 4.731 (FSME-Immun Junior)
- Fyrir fullorðna, kr. 5.167 (FSME-Immun Vuxen)
- Heilahimnubólga (meningókokkar)
- Fjölvirkt fjölsykrubóluefni, kr. 4.490 (ACWY)
- Próteintengt fjölsykrubóluefni gegn stofni C (18 ára og eldri), kr. 5.089 (MCC)
- Hlaupabóla, kr. 6.598
- Hundaæði, kr. 10.315
- Inflúensa, kr. 1.058
- Japönsk heilabólga (JEV), kr. 18.698
- Kíghóstabóluefni með barnaveiki- og stífkrampatoxóíðum (18 ára og eldri, Boostrix), kr. 2.177
- Kólera (bóluefni til inntöku), kr. 6.487
- Lifrarbólga A (Havrix)
- a. Fyrir börn (720 ein. – 0,5 ml), kr. 3.872
- b. Fyrir fullorðna (1440 ein. – 1 ml), kr. 5.463
- Lifrarbólga B (Engerix-B)
- Fyrir börn (0,5 ml), kr. 2.687
- Fyrir fullorðna (1 ml), kr. 3.967
- Lifrarbólga A og B
- Fyrir börn (Twinrix Paediatric), kr. 4.701
- Fyrir fullorðna (Twinrix Adult), kr.7.093
- Lungnabólga (Pneumovax), kr. 2.907
- Mislingar ásamt hettusótt og rauðum hundum, kr. 2.347
- Mýgulusótt, kr. 2.696
- Mænusótt fyrir fullorðna, kr. 1.734
- Papillómaveirubóluefni (HPV)
- Papillómaveirur manna, gerð 6, 11, 16, 18, kr. 22.394
- Papillómaveirur manna, gerð 16, 18, kr. 20.359
- Taugaveiki (Typherix, Typhim-Vi), kr. 3.212
Í ungbarnavernd er ekki greitt fyrir bólusetningar við stífkrampa, mænusótt, rauðum hundum og MMR (mislingar + hettustótt + rauðir hundar), né heldur við lungnabólgubakteríu (pneumokokkum). Ekkert er greitt fyrir hefðbundnar bólusetningar í heilsugæslu í skólum. Þá greiða 12 ára stúlkur ekkert fyrir HPV (Cervarix), en aðrir greiða gjald fyrir HPV-bólusetningu. Gjöld vegna bólusetninga skulu einnig greidd í heimahjúkrun.
Önnur þjónusta
Auk komugjalda skulu sjúkratryggðir 18 ára og eldri greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:
Þungunarpróf kr. 640 Streptokokkarannsóknir kr. 740 CRP (C-reaktíft prótein) kr. 850 HbA 1c (glýkosýlerað hemóglóbín) kr. 1.600 Lyfjaleit í þvagi kr. 2.100 Lykkja (t) kr. 6.300 Berklapróf - Mantoux kr. 2.713 (Tuberkulin). Hormónalykkja r. 22.520
Námskeið
Foreldrafræðsla á heilsugæslustöð/Mæðravernd Þróunarstofu, gildir fyrir báða foreldra, kr. 8.500
Uppeldisnámskeið fyrir foreldra
- Uppeldisnámskeið fyrir foreldra, kr. 8.500 fyrir eitt foreldri, kr. 10.600 fyrir báða foreldra.
- Uppeldis- og foreldrafærninámskeið fyrir foreldra barna með ADHD, kr. 9.500 fyrir eitt foreldri, kr. 12.700 fyrir báða foreldra.
- PMT foreldrafærninámskeið, kr. 15.800 fyrir eitt foreldri, kr. 21.100 fyrir báða foreldra.
- Snillingarnir - færniþjálfunarnámskeið fyrir 8-10 ára börn með ADHD, kr. 7.400.
Læknisvottorð
Vottorð vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fötluð og sjúk börn kr. 0 Vottorð vegna endurhæfingarlífeyris kr. 0 Örorkuvottorð vegna lífeyristrygginga kr. 0 Örorkuvottorð vegna slysatrygginga kr.0 Vottorð um fjarvistir nemenda úr skólum kr. 490 Framhaldsvottorð vegna slysatrygginga kr. 490 Áverkavottorð vegna slysatrygginga kr. 970 Læknisvottorð vegna beiðni um þjálfun kr. 970 Læknisvottorð vegna öflunar hjálpartækja kr. 970 Læknisvottorð vegna lengingar fæðingarorlofs kr. 970 Læknisvottorð vegna hreyfihömlunar (uppbót v. reksturs bifreiðar) kr. 970 Læknisvottorð vegna heimahjúkrunar kr. 970 Læknisvottorð vegna vistunar sjúklings erlendis kr. 970 Læknisvottorð vegna umsóknar um lyfjaskírteini kr. 970 Vottorð vegna sjúkranudds kr. 970 Læknisvottorð vegna sjúkradagpeninga kr. 970 Læknisvottorð vegna ferðakostnaðar innanlands kr. 970 Læknisvottorð vegna umsóknar um styrk og uppbót til kaupa á bifreið fyrir fatlaða kr. 970 Vottorð vegna bóta úr slysa- og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, án greinargerðar, kr. 970 Vottorð um fjarvistir til atvinnurekenda kr. 1.500 Vottorð um heilsufar nemenda til skóla, leikskóla og sumarbúða kr. 1.500 Vottorð um ónæmisaðgerðir og alþjóðaónæmisskírteini kr. 1.500 Vottorð um undanþágu til bílbeltanotkunar kr. 1.500 Vottorð vegna dagmóðurstarfa kr. 1.500 Vottorð vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar, s.s. ferðarofs og til skattayfirvalda kr. 1.500 Vottorð vegna veitingar ökuleyfis kr. 1.500 Vottorð vegna fóstureyðinga og ófrjósemisaðgerða, skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða kr. 3.600 fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur. Vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða kr. 3.600 fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur. Vottorð um heilsufar eða vinnufærni vegna umhverfis eða atvinnu, þ.m.t. vegna atvinnuréttinda kr. 4.300 Vottorð vegna byssuleyfis kr. 4.300 Vottorð vegna skóla erlendis kr. 4.300 Vottorð til lögmanna og tryggingarfélaga vegna sjúkdóma eða slysa skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða kr. 3.600 fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur. Vottorð til lögreglu og sýslumanna vegna dvalar- og/eða atvinnuleyfa hér á landi og dvalar eða starfa erlendis, skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða kr. 3.600 fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur. Vottorð vegna ættleiðinga, skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða kr. 3.600 fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
---
Gjaldskrá fyrir ósjúkratryggða
Greiðslur einstaklinga þegar milliríkjasamningar um almannatryggingar gilda ekki.
Velferðarráðuneytið hefur með "Reglugerð um heilbrigðisþjónustu við þá sem ekki eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og greiðslur þeirra fyrir heilbrigðisþjónustuna" sem gekk í gildi 1. janúar 2012, ákveðið eftirfarandi greiðslur þeirra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.
Einstaklingur tryggður í EES-landi (þetta á einnig við um íslenska ríkisborgara með lögheimili í öðru EES-landi) sem þarf á skyndilegri og nauðsynlegri læknishjálp að halda þegar hann dvelst hér á landi á að greiða eins og þeir sem eru sjúkratryggðir á Íslandi. Forsenda þess er þó að hlutaðeigandi leggi fram:
- Evrópska sjúkratryggingakortið
- Gilt bráðabirgðavottorð E-111
- Gilt vottorð frá tryggingarstofnun í öðru EES landi E-104
- Gilt vottorð E-106 útsendir starfsmenn
- Vegabréf
Athugið vel gildistíma allra gagna. Geti hlutaðeigandi ekki framvísað evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) og vegabréfi skal heilsugæslustöð krefja hann um fulla greiðslu samkvæmt reglugerð. Ferðamenn frá Norðurlöndum þurfa ekki að framvísa evrópska sjúkratryggingakortinu, aðeins persónuskilríkjum sem eru útgefin í búsetu landi.
Heilsugæslustöðin skal taka ljósrit af evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) sjúklings, vegabréfi (eða persónuskilríkjum Norðurlandabúa) og greinargerð læknis og senda til aðalgjaldkera Heilsugæslunnar, sem sendir gögnin með reikningi til Sjúkratrygginga Íslands.
Komur
Fyrir komu á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, kr. 6.200 Fyrir komu á heilsugæslustöð vegna mæðra- og ungbarnaverndar kr. 6.200 Fyrir komu á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma, þ.e. milli kl. 16:00 og 8:00 og á laugardögum og helgidögum kr. 9.200
Vitjanir
Fyrir vitjun læknis á heilsugæslustöð á dagvinnutíma kr. 13.300 Fyrir vitjun læknis á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma kr. 16.600 Fyrir vitjun annarra en lækna á heilsugæslustöð kr. 6.700
Bólusetningar (uppfært mánaðarlega)
Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) sem hér segir:
- Blóðmauraheilabólga
- Fyrir börn, kr. 4.731 (FSME-Immun Junior)
- Fyrir fullorðna, kr. 5.167 (FSME-Immun Vuxen)
- Heilahimnubólga (meningókokkar)
- Fjölvirkt fjölsykrubóluefni, kr. 4.490 (ACWY)
- Próteintengt fjölsykrubóluefni gegn stofni C (18 ára og eldri), kr. 5.089 (MCC)
- Hlaupabóla, kr. 6.598
- Hundaæði, kr. 10.315
- Inflúensa, kr. 1.058
- Japönsk heilabólga (JEV), kr. 18.698
- Kíghóstabóluefni með barnaveiki- og stífkrampatoxóíðum (18 ára og eldri, Boostrix), kr. 2.177
- Kólera (bóluefni til inntöku), kr. 6.487
- Lifrarbólga A (Havrix)
- a. Fyrir börn (720 ein. – 0,5 ml), kr. 3.872
- b. Fyrir fullorðna (1440 ein. – 1 ml), kr. 5.463
- Lifrarbólga B (Engerix-B)
- Fyrir börn (0,5 ml), kr. 2.687
- Fyrir fullorðna (1 ml), kr. 3.967
- Lifrarbólga A og B
- Fyrir börn (Twinrix Paediatric), kr. 4.701
- Fyrir fullorðna (Twinrix Adult), kr.7.093
- Lungnabólga (Pneumovax), kr. 2.907
- Mislingar ásamt hettusótt og rauðum hundum, kr. 2.347
- Mýgulusótt, kr. 2.696
- Mænusótt fyrir fullorðna, kr. 1.734
- Papillómaveirubóluefni (HPV)
- Papillómaveirur manna, gerð 6, 11, 16, 18, kr. 22.394
- Papillómaveirur manna, gerð 16, 18, kr. 20.359
- Taugaveiki (Typherix, Typhim-Vi), kr. 3.212
Bóluefni vegna barnabólusetninga
Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir barnabólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) sem hér segir:
- Barnaveiki, hemophilus influenzae B, kíghósti, mænusótt, stífkrampi (fimmgilt bóluefni) (Infanrix-Polio + Hib, Pentavac), kr. 5.379
- Lungnabólgubaktería (pneumokokkar), 6 vikna – 5 ára börn (Synflorix), kr. 8.681
- Meningokokkar C (NeisVac-C), kr. 5.089
- Mislingar ásamt hettusótt og rauðum hundum (Priorix), kr. 3.100
- Kíghóstabóluefni með barnaveiki- og stífkrampatoxóíðum (Boostrix), kr. 2.177
- Barnaveiki, kíghósti, mænusótt, stífkrampi (fjórgilt bóluefni), frumbólusetning og endurbólusetning með Tetravac, kr. 2.888 eða eingöngu endurbólusetning með Boostrix Polio, kr. 3.249
Komur og bóluefni í ungbarnavernd
Fullt gjald fyrir barnaskoðun á heilsugæslustöð og á Þróunarstofu fyrir þá sem ekki eru sjúkratryggðir hér á landi:
6 vikna skoðun kr 6.200 9 vikna skoðun kr 6.200 eða 9 vikna vitjun kr. 6.700 3ja mán. skoðun kr. 6.200 + DTP + Hib+Polio (Infanrix Polio Hib) kr. 5.379, samt kr. 11.579 5 mán. skoðun kr. 6.200 + DTP + Hib+Polio (Infanrix Polio Hib) kr. 5.379, samt. kr. 11.579 6 mán. skoðun kr. 6.200 + MCC (Neis Vac-C) kr. 5.089, samt kr. 11.289 8 mán. skoðun kr. 6.200 + MCC (Neis Vac-C) kr. 5.089, samt kr. 11.289 10 mán. skoðun kr. 6.200 12 mán. skoðun kr. 6.200 + DTP + Hib + Polio (Infanrix Polio Hib) kr. 5.379, samt. kr. 11.579 18 mán. skoðun kr. 6.200 + MMR (Priorix) kr. 2.347, samt. kr. 8.547 2½ árs skoðun kr. 6.200 4 ára skoðun kr. 6.200 + DTP (Boostrix) kr.3.249 , samt. kr. 8.377 Vitjun í heimahús kr. 6.700
Önnur þjónusta
Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:
- Þungunarpróf kr. 650
- Streptokokkarannsóknir kr. 750
- CRP (C-reaktíft prótein) kr. 850
- HbA 1c (glýkosýlerað hemóglóbín) kr. 1.600
- Lyfjaleit í þvagi kr. 2.000
- Lykkja (t) kr. 6.300
- Hormónalykkja kr. 22.520
- Berklapróf - Mantoux kr. 2.713 (Tuberkulin)
Foreldrafræðsla á heilsugæslustöð/Mæðravernd Þróunarstofu, gildir fyrir báða foreldra, kr. 8.500
Uppeldisnámskeið fyrir foreldra
- Uppeldisnámskeið fyrir foreldra, kr. 8.500 fyrir eitt foreldri, kr. 10.600 fyrir báða foreldra.
- Uppeldis- og foreldrafærninámskeið fyrir foreldra barna með ADHD, kr. 9.500 fyrir eitt foreldri, kr. 12.700 fyrir báða foreldra.
- PMT foreldrafærninámskeið, kr. 15.800 fyrir eitt foreldri, kr. 21.100 fyrir báða foreldra.
- Snillingarnir - færniþjálfunarnámskeið fyrir 8-10 ára börn með ADHD, kr. 7.400.
Gjöld vegna krabbameinsleitar (legstroks og mynd af brjóstum) á heilsugæslustöð, greiðist til viðbótar við komugjald kr. 3.700. Gjöld fyrir læknisvottorð skulu miðast við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða kr. 5.000 fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur. Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknarstofu og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknarstofu skal greiða kr. 3.400 og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna. Fyrir hverja komu til geisla- og myndgreiningar skal greiða kr. 3.400 og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.
Fyrir nauðsynlega túlkaþjónustu skal sjúklingur greiða fullt gjald samkvæmt samningi Ríkiskaupa þjónustuaðila um túlkaþjónustu.
Almenn túlkaþjónusta: 1. Túlkaþjónusta, á dagtíma kr. 6.750 2. Túlkaþjónusta, utan dagtíma kr. 13.000 3. Túlkaþjónusta, án fyrirvara kr. 13.000
Tryggingastaða einstaklinga
Komin er á tenging á milli Heilsugæslunnar í Salahverfi og Sjúkratrygginga Íslands sem uppfærir tryggingastöðu sjúklinga einu sinni á sólarhring. Sögukerfið sýnir rétta tryggingastöðu einstaklinga hvort sem viðkomandi er sjúkratryggður eða ekki. Ef það koma fyrirspurnir frá sjúklingi, er hægt að hafa samband við Sjúkratryggingar Íslands í síma: 515-0003 eða í netsamtali inn á www.tr.is
|