Heilsugæslan Salahverfi - Salavegi 2 - 201 Kópavogi - Sími 590 3900

Breytingar á ung- og smábarnavernd frá 1. september 2009 PDF Print E-mail

Landlæknisembættið hefur ákveðið að taka upp breytt fyrirkomulag á skoðunum í ung- og smábarnavernd. Í stað skoðana við 3½ og 5 ára aldur verða þær gerðar við 2½ og 4 ára aldur barnsins. Sjá www.landlaeknir.is.

Einnig verða tekin í notkun ný tæki til að meta þroska barna. Þau eru PEDS – Mat foreldra á þroska barna og BRIGANCE þroskaskimun.

PEDS – Mat foreldra á þroska barna

PEDS (Parent´s Evaluation of Developemental Status) er spurningalisti þar sem foreldrar geta lýst áhyggjum sínum varðandi málþroska, heyrn, fín- og grófhreyfingar, hegðun og almenna þroskaframvindu barns síns.Til að byrja með er mælt með að nota PEDS við skoðun 18 mánaða, 2½ árs og 4 ára barna og eru foreldrar beðnir um að svara honum við komu í þessar skoðanir.
BRIGANCE þroskaskimun
BRIGANCE þroskaskimun felst í því að hjúkrunarfræðingur leggur verkefni fyrir barnið. Skimunin nær til margra þroskaþátta og skiptist í þrjú svið: skólafærni, samskiptafærni og hreyfifærni. Hún mælir fín- og grófhreyfingar, málnotkun, orðaforða og málskilning, forlestrarfærni, magnhugtök og þekkingu á persónulegum högum. BRIGANCE þroskaskimun verður lögð fyrir 2½ árs og 4 ára gömul börn samhliða PEDS-matinu þannig að greina megi raunveruleg frávik með meiri nákvæmni.

Það er skoðun Landlæknisembættisins að sú ákvörðun að taka upp þessi tvö skimunartæki styðjist við bestu þekkingu á þroska barna og þeim vandamálum sem íslensk börn eiga við að etja. Ung- og smábarnavernd nær til allra barna og foreldra þeirra og er lykilþjónusta til að styðja við og efla heilsu og velferð barna.
 

Heilsugæslan í Salahverfi vill verða við þessum tilmælum og þannig innleiða þessar nýju ungbarnaskoðanir og hvetja því foreldra til að kynna sér þær. Foreldrar/forráðamenn þurfa að panta tíma með góðum fyrirvara á sinni heilsugæslustöð fyrir þessar skoðanir en þær taka frá 40 og upp í 60 mínútur.

·         Börn sem eru 2½ til 3ja ára fara í 2½ árs skoðun hjá hjúkrunarfræðingi og lækni.  

 §  PEDS Mat foreldra á þroska barna og BRIGANCE þroskaskimun. (lögð fyrir barnið).

·         Börn sem eru 3ja til 5 ára og fóru síðast í 18 mánaðar skoðunn, fara í 4 ára skoðun hjá hjúkrunarfræðingi (og lækni ef þörf er á).  

§  PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun (lögð fyrir barnið), sjónpróf . Á þessu aldursskeiði er barnið bólusett gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta, í einni sprautu. Ef foreldrar eru áhyggjufullir og vilja síður láta svo langan tíma líða milli skoðana, er  auka viðtal hjá hjúkrunarfræðingi velkomið. 

·         Börn sem hafa þegar farið í 3½ árs skoðun fara næst í skoðun til hjúkrunarfræðings u.þ.b. ári seinna (og læknis ef þörf er á). 

§  PEDS Mat foreldra á þroska barna

§  Bólusetning. (barnaveiki, stífkrampi, kíghósti í einni sprautu)