Heilsugæslan Salahverfi býður upp sykursýkismóttöku og lífsstílsmóttöku fyrir skjólstæðinga sína. Móttökurnar fela í sér ráðleggingar og eftirfylgd varðandi:
- hækkun á blóðsykri (sykursýki tegund 2)
- hækkun á blóðþrýstingi
- lungnasjúkdóma (öndunarpróf/spirometria)
- reykleysi
- holla lifnaðarhætti (matarvenjur og hreyfingu)
Hægt er að bóka tíma í móttökurnar í síma 590-3900 hjá Bylgju Rún Stefánsdóttur, Fjólu Grímsdóttur og Þorgerði Einarsdóttur hjúkrunarfræðingum.