Opnunartími frá 08 - 17

Fréttatilkynning vegna COVID-19 bóluefnis frá Astra Zeneca (Vaxzevria)

Konum fæddum 1962–1966 sem ekki hafa áhættuþætti sem auka hættu á segamyndun skv. minnisblaði blóðmeinafræðinga til sóttvarnalæknis 9.4. sl. verður boðin bólusetning með Astra Zeneca bóluefni. Yngri konur munu fá boð í önnur bóluefni.

Körlum fæddum eftir 1962 sem ekki hafa áhættuþætti sem auka hættu á segamyndun skv. minnisblaði blóðmeinafræðinga til sóttvarnalæknis 9.4. sl. verður boðin bólusetning með Astra Zeneca bóluefni.

  • Einstaklingar sem hafa aukna hættu á segamyndun að mati blóðmeinafræðinga sem þegar hafa fengið einn skammt af Vaxzevria munu verða boðaðir í mRNA bóluefni, í flestum tilvikum bóluefni frá Pfizer, þegar 12 vikur eru liðnar frá fyrstu bólusetningunni.
    • Einstaklingar sem hafa þegar fengið einn skammt af Astra Zeneca bóluefni án vandkvæða munu geta fengið seinni skammt með Astra Zeneca ef þeir óska þess þótt gert sé ráð fyrir að þeim verði boðið mRNA bóluefni þegar 12 vikur hafa liðið frá Astra Zeneca bólusetningunni. Nánari skýringar verða birtar þegar endanlegt fyrirkomulag er komið á hreint.
    • Einstaklingar sem ekki þiggja þessa bólusetningu þegar boð berst geta fylgst með auglýsingum í opna daga í bólusetningar fyrir þennan aldurshóp eða haft samband við heilsugæslu á sínu svæði til að fá upplýsingar um hvaða daga bólusetning er í boði en fá ekki aftur boð úr miðlæga kerfinu. Líklegt er að sama bóluefni verði notað á opnum dögum þar til framboð annarra kosta eykst.
    • Einstaklingar sem fá boð í Vaxzevria bólusetningu sem eru með áhættuþætti bláæða-blóðsega skv. minnisblaði blóðmeinafræðinga þurfa að hafa samband við heilsugæslu sem fer yfir sjúkrasögu og getur séð til þess að viðkomandi fái frekar mRNA bóluefni ef tilefni er til.
    • Ekki er hægt að óska eftir öðru bóluefni á grundvelli persónulegra óska eða annarrar sjúkrasögu einstaklinga, hvorki hjá heilsugæslu né sóttvarnalækni.
    • Læknar sem telja ástæðu til að aðrar sjúkdómsgreiningar en þær sem koma fram í minnisblaði blóðmeinafræðinga fái merkingu fyrir ákveðið bóluefni þurfa að hafa samband við sóttvarnalækni.

Minnisblað blóðmeinafræðinga frá 8. apríl sl.

 

Hvar erum við?

Heilsugæslan Salahverfi
Salavegi 2 - 201 Kópavogi
Sími
590 3900
Almennur opnunartími frá 08 - 17