Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Þjónusta

Hlutverk heilsugæslunnar er að veita skjólstæðingum sínum aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Pattern1 2
Læknisþjónusta
Móttaka heimilislækna tilheyrir kjarnastarfssemi heilsugæslunnar. Á Heilsugæslunni í Salahverfi starfa nú 9 sérfræðingar í heimilislækningum ásamt læknum í sérnámsgrunni. Hver læknir er með ákveðinn hóp skjólstæðinga á skrá hjá sér.
Hjúkrunarþjónusta
Á stöðinni starfa níu hjúkrunarfræðingar og þar af tveir sem einnig eru ljósmæður. Hjá þeim er hægt  að panta tíma eftir þörfum og fá upplýsingar í síma um hin ýmsu efni.
Sálfræðiþjónusta
Heilsugæslan býður upp á sálfræðiþjónustu fyrir börn og fullorðna ef metin er þörf á slíkri þjónustu. Það er ýmist læknir eða hjúkrunarfræðingur sem leggur mat á hvort sálfræðiþjónusta sé viðeigandi í hvernju tilviki fyrir sig.
Rannsóknaþjónusta
Lífeindafræðingur frá Sameind ehf. kemur á stöðina og tekur blóðsýni að beiðni lækna. Einnig er tekið á móti öðrum sýnum til rannsóknar s.s. saursýnum, þvagsýnum og klamydiusýnum eftir samráð við lækni eða hjúkrunarfræðing