Læknisþjónusta
Samskipti
Samvinna lækna og hjúkrunarfræðinga er líklega það sem fólk verður helst vart við, t.d. í meðgönguvernd, ungbarnavernd og við móttöku einstaklinga með bráð vandamál. Einnig á sér stað samvinna lækna við læknaritara, móttökuritara og starfsfólk rannsóknastofunnar.
Símatímar
Hægt er að hringja og bóka símatíma hjá lækni samdægurs þá daga sem læknir er með símatíma. Læknirinn hringir þá í viðkomandi á ákveðnum símatíma síðar um daginn. Símatímar eru hentug fyrir fyrirspurnir og stutt erindi sem ekki þarfnast skoðunnar. ATH ekki er hægt að óska eftir sýklalyfjum eða sterkum verkjalyfjum í símatíma.
Lyfjaendunýjanir
Lyfjaendurnýjanir lækna gegnum síma fara þannig fram að viðkomandi hefur símasamband við móttökuna milli kl 10 og 12 virka daga og óskar eftir endurnýjun lyfseðlis/lyfseðla. Á þann hátt er þó einungis hægt að endurnýja lyf sem áður hafa verið ávísuð einstaklingnum á stöðinni. Fjölnota lyfseðla er yfirleitt einungis hægt að endurnýja með heimsókn á stöðina. ATH einnig er hægt að endurnýja lyf í gegnum lyfjaendurnýjun á heilsuveru.
Viðtalstími læknis
Miðað er við 15 mínútur og 1 – 2 erindi. Mörg erindi rúmast ekki vel í 15 mínútna viðtalstíma og þarf því að bóka fleiri tíma ef erindi eru mörg. Viðtalstímar lækna eru bókaðir í gegnum móttökuna okkar en hjúkrunarfræðingar geta einnig bókað í þessa tíma í ákveðnum tilvikum.
Vaktþjónusta
Læknar og hjúkrunarfræðingar standa vaktina alla virka daga og vinna í teymi við að leysa bráð vandamál sem ekki geta beðið. Læknar og hjúkrunarfræðingar bóka á þessar vaktir oftast eftir símtal. Hér er miðað við aðeins eitt erindi fyrir hvern skjólstæðing.