Þjónusta
Heilsugæslan sinnir fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu og ætti að vera fyrsti viðkomustaður einstaklinga með heilbrigðisvandamál í flestum tilvikum. Á heilsugæslunni fer þannig fram greining og meðferð heilsuvanda, mæðravernd og ungbarnaeftirlit, almenn heilsuvernd á formi bólusetninga, fræðslu og eftirlits. Heilsugæslan sinnir einnig slysa- og bráðamóttöku og vísar skjólstæðingum áfram í annars- eða þriðjastigs heilbrigðisþjónustu eftir atvikum. Á Heilsugæslunni Salahverfi fer einnig fram kennsla læknanema, hjúkrunarfræðinema og sérnámsgrunnlækna.
Læknisþjónusta
Móttaka heimilislækna tilheyrir kjarnastarfssemi heilsugæslunnar. Á Heilsugæslunni í Salahverfi starfa nú 9 sérfræðingar í heimilislækningum ásamt læknum í sérnámsgrunni. Hver læknir er með ákveðinn hóp skjólstæðinga á skrá hjá sér.
Hjúkrunarþjónusta
Á stöðinni starfa níu hjúkrunarfræðingar og þar af tveir sem einnig eru ljósmæður. Hjá þeim er hægt að panta tíma eftir þörfum og fá upplýsingar í síma um hin ýmsu efni.
Sálfræðiþjónusta
Heilsugæslan býður upp á sálfræðiþjónustu fyrir börn og fullorðna ef metin er þörf á slíkri þjónustu. Það er ýmist læknir eða hjúkrunarfræðingur sem leggur mat á hvort sálfræðiþjónusta sé viðeigandi í hverju tilviki fyrir sig.
Rannsóknaþjónusta
Lífeindafræðingur frá Sameind ehf. kemur á stöðina og tekur blóðsýni að beiðni lækna. Einnig er tekið á móti öðrum sýnum til rannsóknar s.s. saursýnum, þvagsýnum og klamydiusýnum eftir samráð við lækni eða hjúkrunarfræðing