Móðir og barn
Ekkert verður alveg eins og áður. Hvert barn er einstakt. Oftast gengur allt vel, en þó er fullkomlega eðlilegt að finna til óöryggis í nýju hlutverki og hafa áhyggjur. Þá er gott að geta leitað til annarra. Á Heilsugæslu Salahverfis starfa hjúkrunarfræðingar, heimilislæknar og ljósmæður við ung- og smábarnavernd. Markmið okkar er að fylgjast reglulega með heilsu og framförum barna og veita foreldrum stuðning, þannig að börnum séu búin bestu mögulegu uppvaxtarskilyrði á hverjum tíma.
Meðgönguvernd
Fjölskyldum sem búsettar eru á þjónustusvæði stöðvarinnar eða eru með heimilislækni á stöðinni býðst þjónusta á meðgöngu. Markmiðið er að stuðla að farsælli meðgöngu með faglegri umönnun, fræðslu og stuðningi.
Ung- og smábarnavernd
Markmið ung- og smábarnaverndar er að fylgjast reglulega með heilsu og framvindu þroska barna frá fæðingu til 6 ára aldurs ásamt því að veita foreldrum stuðning þannig að börnunum séum búin bestu mögulegu uppvaxtarskilyrði á hverjum tíma.
Farsæld barna
Farsæld barna felur í sér að tryggja aðstæður sem skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar samkvæmt nýrri löggjöf um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Foreldrafræðsla
Námskeið fyrir foreldra ungra barna til að efla almenna uppeldisfærni og kenna aðferðir til að fyrirbyggja erfiðleika og þróa styrkleika.