Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Læknisþjónusta

Móttaka heimilislækna tilheyrir kjarnastarfssemi heilsugæslunnar. Á Heilsugæslunni í Salahverfi starfa nú 9 sérfræðingar í heimilislækningum ásamt læknum í sérnámsgrunni. Hver læknir er með ákveðinn hóp skjólstæðinga á skrá hjá sér. 
Pattern Dot Double

Þjónusta fyrir alla

Starfsfólk Heilsugæslunnar í Salahverfi leggur sig fram við að veita skjólstæðingum stöðvarinnar góða þjónustu. Í því felst meðal annars að gera allt sem mögulegt er til að hafa góðan aðgang að starfsfólkinu og að viðhafa samfelldni í þjónustunni. Það er metnaðarmál lækna sem og annarra starfsmanna Heilsugæslunnar í Salahverfi að búa svo um hnútana að heilsugæslan verði í hugum skjólstæðinganna að öllu jöfnu fyrsti viðkomustaður þeirra í heilbrigðiskerfinu.

Samskipti

Viðtal við lækni á stöðinni er algengasta form samskiptanna og er miðað við 15 mínútna viðtöl. Bókað er í þessa tíma í gegnum símtal við móttökuna í flestum tilvikum. Sé erindi þess eðlis að það þoli enga bið þá leggur hjúkrunarfræðingur mat á hvort hægt sé að leysa það í gegnum síma eða bóka þurfi á dagvaktina samdægurs. Dagvaktina standa læknar og hjúkrunarfræðingar sem vinna saman í teymi. Dagvaktin er ekki ætluð fyrir fleiri en eitt erindi eða gömul vandamál.
Læknir sinnir einnig síðdegismóttöku milli 16 - 17 alla virka daga. Hjúkrunarfræðingar bóka í þessa móttöku og er miðað við hámark 10 einstaklinga.

Símatímar

Allir læknar Heilsugæslunnar hafa símatíma.  Til að ná símasambandi við lækni þarf að hafa samband við móttökuna að morgni dags (best að hringja kl. 8) og óska eftir símtali. Læknirinn hringir þá í viðkomandi á ákveðnum símatíma síðar um daginn. Símatímar eru ætlaðir til ýmiss konar ráðgjafa og upplýsinga t.d. um rannsóknaniðurstöður.

Lyfjaendunýjanir

Lyfjaendurnýjanir lækna gegnum síma fara þannig fram að viðkomandi hefur símasamband við móttökuna eftir kl. 10 og óskar eftir endurnýjun lyfseðlis/lyfseðla. Á þann hátt er þó einungis hægt að endurnýja lyf sem áður hafa verið ávísuð einstaklingnum á stöðinni. Fjölnota lyfseðla er yfirleitt einungis hægt að endurnýja með heimsókn á stöðina. 10 - 12 en einnig er hægt að endurnýja lyf í gegnum lyfjaendurnýjun á heilsuveru. Margvísleg samvinna lækna við annað starfsfólk stöðvarinnar á sér stað við úrlausn heilsuvanda skjólstæðinga stöðvarinnar. Samvinna lækna og hjúkrunarfræðinga er líklega það sem fólk verður helst vart við, t.d. í  meðgönguvernd, ungbarnavernd og við móttöku einstaklinga með bráð vandamál. Einnig á sér stað samvinna lækna við læknaritara, móttökuritara og starfsfólk rannsóknastofunnar.